Mýrdalshlaupið fór fram í dag, annað árið í röð og voru keppendur 22 talsins. Hlaupið var frá Dyrhólaós eftir Reynisfjöru, upp á og eftir brún Reynisfjalls og loks niður til Víkur. Vegalengdin eru 10km og er hlaupið utan vega. Veðrið lék við keppendur og Mýrdalurinn skartaði sínu fegursta.
Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla og kvennaflokkum.
Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark á tímanum 42,49. Snorri Gunnarsson var annar á 49,35 og Guðni Páll Pálsson þriðji á 49,46.
Fyrst kvenna í mark var Jónína Gunnarsdóttir á 57,39, Guðbjörg Margrét Björnssdóttir önnur á 58,36 og Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir sú þriðja á 59,39.
1 | Kári Steinn Karlsson | 42,49 |
2 | Snorri Gunnarsson | 49,35 |
3 | Guðni Páll Pálsson | 49,46 |
4 | Ásgeir Haukur Einarsson | 53,33 |
5 | Ástþór Jón Tryggvason | 57,03 |
6 | Jónína Gunnarsdóttir | 57,39 |
7 | Reynir Guðmundsson | 58,19 |
8 | Guðbjörg Margrét Björnsdóttir | 58,36 |
9 | Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir | 59,39 |
10 | Aldís Arnardóttir | 1.03,29 |
11 | Gunnar Már Gunnarsson | 1.05,57 |
12 | Steingerður hreinsdottir | 1.06,16 |
13 | Súsanna Ernst Friðriksdóttir | 1.06,52 |
14 | Ingólfur Ö Arnarson | 1.11,30 |
15 | Hákon Hjartarson | 1.11,37 |
16 | Victoria Sabína Reynoldsdóttir | 1.12,13 |
17 | Sigurborg Kristinsdóttir | 1.14,26 |
18 | Valgerður Ólafsdóttir | 1.15,28 |
19 | Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir | 1.21,37 |
20 | Guðrún Lilja Kristófersdóttir | 1.36,29 |
21 | Alexandra Marín Sveinsdóttir | 1.36,35 |
22 | Guðlaug Björk Sigurðardóttir | 1.37,42 |
USVS vill þakka styrktaraðilum hlaupsins, Icewear, Afreksvörur, Arcanum, Mjólkursamsalan, Fagradalsbleykja, E. Guðmundsson ehf, og Mýrdalshrepp, fyrir alla hjálpina.
Síðast en ekki síst þakkar USVS öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að framkvæmd hlaupsins og auðvitað keppendum fyrir þáttökuna og góðan dag og vonum við að sem flestir komi aftur á næsta ári!