Púttkeppni meðal vinsælustu keppnisgreina á 50+

Púttkeppni meðal vinsælustu keppnisgreina á 50+

Keppni í pútti hefur verið meðal vinsælustu keppnisgreina á landsmóti 50+. Þetta árið hefur skráningin verið góð og eru nokkur sæti laus fyrir þá sem hafa áhuga þannig að það er um að gera að drífa í að skrá sig. Golfklúbburinn í Vík er að búa til nýja púttflöt við Golfskálann sem verður notuð á Landsmótinu. Sérgreinastjóri í Púttkeppninni er Eggert Skúlason Skráning inn á síðu UMFÍ...
Kynningarfundur á Landsmóti UMFÍ 50+ í Leikskálum

Kynningarfundur á Landsmóti UMFÍ 50+ í Leikskálum

Allir íbúar Mýrdalshrepps og nágrennis,félagar innan vébanda USVS auk allra sem að áhuga hafa fyrir landsmóti 50+ eru velkomnir á kynningarfund í Leikskálum þriðjudaginn 21.maí kl.20. Kynnt verður dagskrá Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið verður dagana     7.-9.júní í Vík. Einnig verður útskýrt hvernig hægt er að taka þátt sem keppandi og sjálfboðaliði, greinarnar kynntar sem og aðrir viðburðir í kringum mótið. Það er mikilvægt að allir íbúar standi saman að því að gera þetta mót hið glæsilegasta í alla staði. Gestir koma alls staðar að af landinu og þurfa þeir á þjónustu að halda alla helgina, verður þetta mikil kynning fyrir svæðið og því mikilvægt að vel takist til. Takið kvöldið frá og verið með okkur í að undirbúa þennan stóra viðburð í okkar sveitarfélagi. Landsmótskveðja, Mýrdalshreppur og...
Skráning hafin á Landsmót 50+ í Vík

Skráning hafin á Landsmót 50+ í Vík

Kæru ungmennafélagar   Nú er búið að opna fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 +. Mikilvægt er að fólk skrái sig sem fyrst til að hægt sé að átta sig á umfangi greina. Góð þátttaka hefur verið í boccia undafarin ár því er mikilvægt að fá skráningar í þá grein sem fyrst. Ef takmarka þarf í greinar komast þeir að sem skrá sig fyrst. Skráning fer fram http://skraning.umfi.is/50plus/ aðrar upplýsingar um mótið er að finna á http://umfi.is/umfi09/50plus/ eða á facebook síðu mótsins (Landsmót UMFÍ 50 +). Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest á Landsmóti UMFÍ 50 + í Vík í Mýrdal helgina 7. – 9....