Nú styttist heldur betur í Landsmót UMFÍ 50+ í Hveragerði, sem verður dagana 23.-25. júní.

Ertu tilbúin/n?

USVS hvetur til þátttöku og vonast til að fólk fjölmenni á þennan skemmtilega viðburð. Opnað var fyrir skráningu 1. júní. Það er hægt að skrá sig á umfi.is.

Á mótinu í Hveragerði verður hægt að keppa í fjölda greina allt frá kúluvarpi til pútts, fuglagreiningar, strandblaki til pönnukökubaksturs og stígvélakasts. Þá er bridds eftir, golf, boccía og utanvegahlaupið. Þetta er bara brot af greinunum