Búið að ákveða keppnisgreinar á 3. Landsmóti UMFÍ í Vík

Búið að ákveða keppnisgreinar á 3. Landsmóti UMFÍ í Vík

Ákveðið hefur verið í hvaða  keppnisgreinum verður keppt í á 3. Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vík í Mýrdal næsta sumar. Mótið er íþrótta – og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða afþreying fyrir keppendur og gesti. Einnig verður boðið upp á fræðslu um hollustu og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjöldi annarra viðburða. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), Ungmennafélags Íslands og Mýrdalshrepps. Fyrirhugaðar keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup, boccia, bridds, golf, frjálsar hestaíþróttir, hringdansar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, sund, sýningar, þríþraut og hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta. Frekari upplýsingar um gistiaðstöðu verður að finna inn á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is innan tíðar. Mynd: Frá 2. Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið var í Mosfellsbæ sl....
Landsmótsnefnd kom saman

Landsmótsnefnd kom saman

3. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið dagana 7.–9. júní 2013 í Vík í Mýrdal. Fyrsta mótið var haldið á Hvammstanga 2011 og í sumar sem leið var annað mótið haldið í Mosfellsbæ og tókst einstaklega vel. Mótið er sérstaklega ætlað fólki 50 ára og eldra. Framkvæmd mótsins er í höndum Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Vestur Skaftafellssýslu, í samstarfi við Mýrdalshrepp. Mótið er íþrótta- og heilsuhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölmörgu greinum sem í boði eru. Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru Frjálsar, sund, boccia, golf, pútt, skák, bridds, starfsíþróttir,  Ringó,  hestaíþróttir, línudans, sýningarhópar, þríþraut, almenningshlaup, hjólreiðar.  Landsmót UMFÍ 50+ er tilvalinn vettvangur til að hittast, etja kappi og eiga góða stund saman. Mynd frá vinstri: Hluti landsmótsnefndar UMFÍ 50+. Ragnheiður Högnadóttir, Sæmundur Runólfsson, Guðni Einarsson, Björg Jakobsdóttir, Victoria Reinholdsdóttir og Ásgeir...