Sameiginleg æfing í frjálsíþróttum

Sameiginleg æfing í frjálsíþróttum

Laugardaginn 17. Maí verður haldin sameiginleg íþróttaæfing í frjáls- íþróttum á íþróttavellinum í Vík. Æfingin er opin öllum félagsmönnum USVS og stendur frá kl 10:00 til 14:00. Létt hressing í boði í hádeginu fyrir þáttakendur. Vonumst til að sjá sem...
Innanhúsmót USVS 2015

Innanhúsmót USVS 2015

Innanhúsmót USVS verður haldið á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 1. mars n.k. Mótið hefst kl 11:00. Athugið breytta dagsetningu! Tímaseðil mótsins má sjá á hér Að auki er keppt í eftirfarandi sundgreinum: 9-10 ára – 25 m bringa, 25 skrið 11-12 ára –  50m skrið, 50m bringa, 50m bak 13-15 ára – 50m skrið, 50m bringa, 50m bak Skráning hjá usvs@usvs.is Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta koma og taka...
Guðni Páll kveður USVS

Guðni Páll kveður USVS

Guðni Páll Pálsson kom fjórði í mark í Gamlárshlaupi ÍR á tímanum 34:32. Guðni hefur undanfarin ár verið einn af bestu, ef ekki besti íþróttamaður USVS. Á árinu 2014 setti Guðni 4 héraðsmet í 800m, 5km, 10km og hálfu maraþoni. Meðal afreka hans á árinu má nefna 800m hlaup á vormóti HSK þar sem hann hafnaði í 2. sæti á tímanum 1:59,61 og bætti þar með héraðsmet Guðna Einarssonar frá árinu 1987 (eða jafn gamalt honum sjálfum) um tæpar 7 sekúndur. Í Reykjavíkurmaraþoni kom hann í mark á tímanum 1:17:07 og hafnaði í 3. sæti Íslenskra karla. Hann bætti þar með, aftur héraðsmet, að vísu í þetta skipti met sem hann átti sjálfur frá árinu áður. Hápunktur ársins var þó Ármannshlaupið en þar kom Guðni í mark á tímanum 33:07 og hafnaði í 3 sæti. Ekki nóg með það, heldur var þetta 3. besti tími ársins og 20. besti 10km tími frá upphafi á Íslandi. Þetta er þó aðeins brot af afrekum hans á árinu sem er að líða. Guðni kveður nú USVS í bili með Gamlárshlaupinu, en hann gengur nú eftir áramót til liðs við ÍR þar sem hann æfir með fremsta frjálsíþróttafólki landsins. Í febrúar heldur hann með liði ÍR til Madríd, þar sem þau munu taka þátt í Evrópukeppni félagsliða í víðavangshlaupum. USVS þakkar Guðna Páli fyrir góð ár og óskar honum velfarnaðar á nýjum...
Æskulýðssjóður USVS

Æskulýðssjóður USVS

Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu auglýsir eftir umsóknum í Æskulýðssjóð USVS.   Styrkhæf teljast verkefni sem uppfylla kröfur 5.gr reglugerðar USVS um Æskulýðssjóð   grein Framlög úr æskulýðssjóði má veita til eftirtalinna verkefna, svo fremi að þau verkefni nýtist að öllu, eða mestöllu leyti, æsku aðildarfélaga USVS. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna Íþróttastarfs, svo sem keppnisferða og námskeiða á því sviði. Forvarnarstarfs gegn neyslu vímuefna. Tómstunda- og menningarstarfs Annarra verkefna sem snúa að æskulýðsmálum og teljast í samræmi við yfirlýst stefnumið UMFÍ og USVS.   Reglugerð um Æskulýðssjóð Umsóknir berist til Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu með tölvupósti á usvs@usvs.is fyrir 24. Nóvember n.k. Nánari upplýsingar veitir Birgir Örn framkvæmdastjóri á netfanginu usvs@usvs.is eða síma...
Mýrdalshlaup 2014

Mýrdalshlaup 2014

Mýrdalshlaupið fór fram í dag, annað árið í röð og voru keppendur 22 talsins. Hlaupið var frá Dyrhólaós eftir Reynisfjöru, upp á og eftir brún Reynisfjalls og loks niður til Víkur. Vegalengdin eru 10km og er hlaupið utan vega. Veðrið lék við keppendur og Mýrdalurinn skartaði sínu fegursta. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla og kvennaflokkum. Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark á tímanum 42,49. Snorri Gunnarsson var annar á 49,35 og Guðni Páll Pálsson þriðji á 49,46. Fyrst kvenna í mark var Jónína Gunnarsdóttir á 57,39, Guðbjörg Margrét Björnssdóttir önnur á 58,36 og Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir sú þriðja á 59,39. 1 Kári Steinn Karlsson 42,49 2 Snorri Gunnarsson 49,35 3 Guðni Páll Pálsson 49,46 4 Ásgeir Haukur Einarsson 53,33 5 Ástþór Jón Tryggvason 57,03 6 Jónína Gunnarsdóttir 57,39 7 Reynir Guðmundsson 58,19 8 Guðbjörg Margrét Björnsdóttir 58,36 9 Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir 59,39 10 Aldís Arnardóttir 1.03,29 11 Gunnar Már Gunnarsson 1.05,57 12 Steingerður hreinsdottir 1.06,16 13 Súsanna Ernst Friðriksdóttir 1.06,52 14 Ingólfur Ö Arnarson 1.11,30 15 Hákon Hjartarson 1.11,37 16 Victoria Sabína Reynoldsdóttir 1.12,13 17 Sigurborg Kristinsdóttir 1.14,26 18 Valgerður Ólafsdóttir 1.15,28 19 Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir 1.21,37 20 Guðrún Lilja Kristófersdóttir 1.36,29 21 Alexandra Marín Sveinsdóttir 1.36,35 22 Guðlaug Björk Sigurðardóttir 1.37,42 USVS vill þakka styrktaraðilum hlaupsins, Icewear, Afreksvörur, Arcanum, Mjólkursamsalan, Fagradalsbleykja, E. Guðmundsson ehf, og Mýrdalshrepp, fyrir alla hjálpina. Síðast en ekki síst þakkar USVS öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að framkvæmd hlaupsins og auðvitað keppendum fyrir þáttökuna og góðan dag og vonum við að sem flestir komi aftur á næsta...