Ársþing USVS 2016
46. Ársþing USVS verður haldið á Hótel Laka þann 19. mars 2016 kl 10:00. Dagskrá skv. lögum USVS. Frestur til að skila inn tillögum að laga og/eða reglugerðarbreytingum er eigi síðar en 12. mars.
46. Ársþing USVS verður haldið á Hótel Laka þann 19. mars 2016 kl 10:00. Dagskrá skv. lögum USVS. Frestur til að skila inn tillögum að laga og/eða reglugerðarbreytingum er eigi síðar en 12. mars.
Innanhúsmót í frjálsum íþróttum verður haldið í íþróttarhúsinu Kirkjubæjarklaustri 27. febrúar. 2016 mótið hefst kl. 10:00. Tekið er við skráningum í gegn um tölvupóst, netfangið er usvs@usvs.is skráning sendist með nafni og kennitölu keppenda ásamt hvaða keppnisgreinar viðkomandi vill keppa í. Keppnisgreinar fyrir fólk á öllum aldri, sjáumst hress.
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði February 17, 2016
Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur nú í sjöunda sinn fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Niður með grímuna – geðheilbrigði ungmenna á Íslandi og mun hún fara fram 16. – 18. mars á Hótel Selfossi. Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni en jafnframt koma Héraðssambandið Skarphéðinn og Sveitarfélagið Árborg að undirbúningi.
Styrkhæf teljast verkefni sem uppfylla kröfur 5.gr reglugerðar USVS um Æskulýðssjóð. Umsóknir berist til Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu með tölvupósti á usvs@usvs.is fyrir 1. Mars n.k
Árleg þrettándagleði var haldin venju samkvæmt þann 6.janúar í Leikskálum, veitt verðlaun fyrir íþróttamann ársins , efnilegasta íþróttamann ársins og björtustu vonina að því loknu var spilað bingó. Ekkert varð af flugeldasýningu þetta árið vegna veðurs (aldrei þessu vant).